Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 15:30
Elvar Geir Magnússon
Bellingham meiddur og missir af komandi landsleikjum
Mynd: Getty Images
Jude Bellingham spilar ekki næstu vikurnar vegna meiðsla á fæti.

Þessi 21 árs miðjumaður Real Madrid og enska landsliðsins verður ekki klár aftur fyrr en eftir næsta landsleikjaglugga.

Carlo Ancelotti stjóri Real Madrdi sagði á fréttamannafundi í dag að hann hefði fengið högg á fótinn og verði ekki með í heimaleik Real Madrid gegn Real Valladolid á sunnudag.

Madrídarliðið á einnig deildarleiki gegn Las Palmas og Real Betis áður en kemur að landsleikjaglugganum.

England er að fara að mæta Heimi Hallgrímssyni og lærisveinum í Írlandi í Þjóðadeildinni þann 7. september. Englendingar taka svo á móti Finnum á Wembley þremur dögum síðar.
Athugasemdir
banner
banner