Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   fös 23. ágúst 2024 14:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bournemouth opnar á samtalið við Chelsea
Mynd: EPA
Bournemouth hefur hafið samtalið við Chelsea um að fá Kepa Arrizabalaga á láni frá Lundúnum.

Kepa er ekki í plönum Chelsea í vetur en hann var á láni hjá Real Madrid í fyrra.

Andoni Iraola, stjóri Bournemouth, þekkir vel til Kepa því þeir spiluðu saman hjá Athletic Bilbao á sínum tíma.

Fjárhagslega gæti lánssamningur orðið flókinn því Kepa á einungis eitt ár eftir af samningi sínum Á Stamford Bridge. Það gæti farið þannig að markvörðurinn framlengi um eitt ár á Brúnni svo hann geti farið í burtu á láni.

Chelsea greiddi háa upphæð fyrir Kepa á sínum tíma og vill eðlilega reyna að fá eitthvað fyrir hann.

Neto er aðalmarkvörður Bournemouth og Mark Travers er varamarkvörður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner