Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 11:00
Elvar Geir Magnússon
Crystal Palace vill Sterling
Mynd: EPA
Crystal Palace er meðal félaga sem hafa áhuga á að fá Raheem Sterling frá Chelsea.

Sterling er úti í kuldanum hjá Chelsea og frjálst að yfirgefa félagið eftir að honum var gert ljóst að hann ætti ekki framtíð undir stjóranum Enzo Maresca.

Samkvæmt Mail Sport er Palace að rýna í það bak við tjöldin hvort það sé raunhæft að kaupa Sterling. Það eru ákveðnar hindranir, þar á meðal launatölurnar en Sterling er með 325 þúsund pund í vikulaun.

Crystal Palace er í London og að gæti aukið möguleika félagsins á að fá Sterling. Þessi 29 ára leikmaður og fjölskylda hans hafa fest niður rætur í höfuðborginni síðan hann kom frá Manchester City árið 2022.

Sterling hefur einnig verið orðaður við Aston Villa og þá hefur Juventus sýnt honum áhuga.
Athugasemdir
banner