Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Juventus setur sig aftur í samband við Sancho
Mynd: Getty Images

Jadon Sancho er orðaður í burtu frá Man Utd fyrir lok félagaskiptagluggans en mörg félög eru áhugasöm.


Fabrizio Romano greinir frá því að Juventus hafi aftur sett sig í samband við umboðsmann Sancho en ítalska félagið hefur verið á eftir honum í sumar.

Sancho var ekki í leikmannahópi Man Utd um síðustu helgi en það ýtti undir sögusagnir að hann væri á förum frá félaginu. Erik ten Hag greindi hins vegar frá því að hann hafi verið veikur.

Sancho og Ten Hag áttu ekki gott samband á síðustu leiktíð sem endaði með því að hann var lánaður til Dortmund þar sem hann lék 21 leik og skoraði þrjú mörk í öllum keppnum.


Athugasemdir
banner
banner