Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kean ánægður hjá Fiorentina - Skoraði sitt fyrsta mark í rúmt ár
Moise Kean í leik með Juventus
Moise Kean í leik með Juventus
Mynd: EPA

Moise Kean skoraði sitt fyrsta mark fyrir Fiorentina í 3-3 jafntefli gegn Puskas Academy í Sambandsdeildinni í gær.


Þetta var fyrsta mark ítalska framherjans í rúmt ár en honum tókst ekki að skora með Juventus á síðustu leiktíð. Síðasta mark hans í keppnisleik var 1. apríl 2023 þegar hann skoraði sigurmarkið í leik með Juventus gegn Hellas Verona.

„Ég trúi því að ég sé á réttum stað á réttum tíma. Hlutir gerast ekki af tilviljun, þetta er undir mér komið að gefa 100% í þetta á vellinum. Ég einbeiti mér að því að gera vel með Fiorentina, leggja mig 100% fram," sagði Kean.

Kean gekk til liðs við Fiorentina frá Juventus fyrir 18 milljónir evra.


Athugasemdir
banner