Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   fös 23. ágúst 2024 10:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ýtir enn frekar undir sögur um skipti til Man Utd
Mynd: EPA
Manuel Ugarte, miðjumaður PSG, er aðra helgina í röð ekki í leikmannahópi PSG fyrir leik liðsins í frönsku deildinni.

Manchester United er sterklega orðað við Úrúgvæjann, líklegasta niðurstaðan virðist vera lán þar sem United þyrfti svo að kaupa kappann í kjölfarið.

Hann er 23 ára og kom frá Sporting í Portúgal síðasta sumar. Eftir að PSG keypti Joao Neves í sumar var nokkuð ljóst að hlutvark Ugarte yrði minna en á síðasta tímabili.

Carlos Soler, skotmark West Ham, er heldur ekki í hópnum hjá PSG fyrir leikinn gegn Montpellier í kvöld. Soler er 27 ára spænskur miðjumaður.
Athugasemdir
banner
banner
banner