Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 10:20
Ívan Guðjón Baldursson
Broja fer ekki til Ipswich
Mynd: EPA
The Guardian greinir frá því að albanski framherjinn Armando Broja mun ekki skipta yfir til Ipswich Town frá Chelsea á lánssamningi eins og búist var við.

Félagaskipti Broja til Ipswich virtust vera frágengin í vikunni en nú hefur verið hætt við. Óljóst er hvaða vandamál kom upp, en ljóst er að Chelsea hefur núna eina viku til að losa sig við Broja og þónokkra aðra leikmenn úr leikmannahópinum.

Hinn 22 ára gamli Broja er með fjögur ár eftir af samningi sínum við Chelsea, en hann hefur skorað 3 mörk í 38 leikjum fyrir félagið.

Hann stóð sig vel á láni hjá Southampton tímabilið 2021-22 en hefur ekki fundið réttan takt síðan þá.

   20.08.2024 18:07
Broja á leið til Ipswich á láni

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner