Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   fös 30. ágúst 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Amrabat á leið til Fenerbahce
Mynd: EPA

Sofyan Amrabat er á leið til Fenerbahce á láni frá Fiorentina. Frá þessu greinir Fabrizio Romano.


Atletico Madrid hafði áhuga á þessum landsliðsmanni Marokkó en tilboð spænska liðsins var ekki ásættanlegt fyrir Fiorentina.

Amrabat mun fara á láni til Fenerbahce til að byrja með en það er ákvæði í samningnum um að tyrkneska félagið verði að festa kaup á honum þegar lánssamningnum lýkur.

Félagið mun borga 16 milljónir evra fyrir hann. Fenerbahce borgar Fiorentina tvær milljónir evra fyrir að fá hann á láni.

Amrabat er 28 ára gamall miðjumaður en hann var á láni hjá Man Utd á síðustu leiktíð. Hann lék 30 leiki í öllum keppnum fyrir enska liðið.


Athugasemdir
banner
banner