Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
   fös 26. júlí 2024 13:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mazraoui ekki til West Ham - Man Utd í viðræðum
Noussair Mazraoui.
Noussair Mazraoui.
Mynd: EPA
Noussair Mazraoui er ekki á leið til West Ham, það er út af borðinu. Lundúnafélagið var búið að ná samkomulagi við Bayern München um kaupverð en félagið náði í kjölfarið ekki samkomulagi við umboðsmenn hans varðandi samninginn.

Sky í Þýskalandi segir frá því að Manchester United sé núna að reyna að fá hinn 26 ára gamla Mazraoui eftir að félagaskipti hans til West Ham gengu ekki upp.

Man Utd er í viðræðum við Bayern um hægri bakvörðinn en þýska stórveldið samþykkti 19,5 milljón evra tilboð frá West Ham í hann.

West Ham er núna að skoða aðra möguleika í bakvarðastöðurnar en talið er að Aaron Wan-Bissaka, hægri bakvörður Man Utd, sé einnig búinn að hafna félaginu.

Kyle Walker-Peters, bakvörður Southampton, hefur einnig verið orðaður við West Ham.
Athugasemdir
banner
banner
banner