Real Madrid setur Alexander-Arnold í forgang - Barella orðaður við mörg félög - Tekur Montella við af Ten Hag? - Liverpool horfir á varnarmann Sevilla
banner
   fös 26. júlí 2024 09:25
Elvar Geir Magnússon
Greenwood leigir húsið sitt til Yoro
Leny Yoro.
Leny Yoro.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn ungi Leny Yoro, sem gekk á dögunum í raðir Manchester United, er að fara að flytja inn í einbýlishús Mason Greenwood.

Samkvæmt The Sun mun Yoro leigja húsið á tæplega 2,5 milljónir íslenskra króna á mánuði.

Þetta er reyndar ekkert smá hús. Það er með sex svefnherbergjum og sex salernum. Þar er kvikmyndasalur og bar. Verðmæti þess er talið um 2 milljónir punda.

Greenwood er farinn til Frakklands þar sem hann spilar undir stjórn Roberto De Zerbi hjá Marseille. Greenwood átti ekki afturkvæmt í lið Manchester United eftir að hafa verið ákærður fyrir nauðgun og heimilisofbeldi en málið var látið niður falla í febrúar í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner