Greenwood eftirsóttur - Isak til PSG? - Chelsea vill gera skiptidíl við Inter
   lau 21. september 2024 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Slot: Mikið betri viðbrögð heldur en eftir Old Trafford
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Arne Slot var kátur eftir 3-0 sigur Liverpool gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Bournemouth skoraði fyrsta mark leiksins en það var ekki dæmt gilt vegna rangstöðu og í kjölfarið settu heimamenn í Liverpool þrjú mörk.

Luis Díaz skoraði tvennu áður en Darwin Núnez setti þriðja markið og var staðan 3-0 í leikhlé.

„Ég var forvitinn að sjá hvernig liðið myndi bregðast við eftir sigurinn gegn Milan og ég verð að segja að ég er mjög ánægður með það sem ég sá. Það eru mikil gæði í þessu liði en það eru mikil gæði í mörgum liðum í ensku úrvalsdeildinni, það eru aðrir þættir sem gera herslumuninn," sagði Slot eftir sigurinn.

„Það er ekki mikið mál að vinna einn og einn leik útaf gæðunum, en ef maður vill vinna marga leiki í röð þá snýst þetta líka um hugarfar. Viðbrögðin okkar eftir sigurinn gegn Man Utd voru mjög léleg miðað við núna. Við töpuðum næsta leik á heimavelli gegn Nottingham Forest eftir að hafa lagt Rauðu djöflana að velli á Old Trafford. Það eru ekki viðbrögðin sem maður vill sjá frá liði sem ætlar sér að vinna titla.

„Ég er mjög ánægður með þessi viðbrögð hjá hópnum en strákarnir verða að halda þessu áfram ef þeir ætla sér að vinna til einhverra verðlauna á leiktíðinni."

Athugasemdir
banner
banner
banner