Tottenham fékk Brentford í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í dag og lenti undir snemma leiks.
Heimamönnum tókst þó að snúa stöðunni við og höfðu að lokum betur 3-1 í fjörugum leik þar sem Guglielmo Vicario, markvörður Tottenham, átti nokkrar frábærar markvörslur.
Ítalinn var þó heppinn að sleppa við að fá dæmda aukaspyrnu og gult spjald á sig þegar hann handlék boltann augljóslega utan vítateigs í stöðunni 2-1 í síðari hálfleik.
Það er hreint ótrúlegt að John Brooks dómari hafi ekki séð atvikið. Leikmenn Brentford kvörtuðu sáran en fengu þó ekki dæmda aukaspyrnu.
Sjáðu atvikið
Athugasemdir