Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   mið 22. maí 2024 14:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór/KA og Tindastóll víxla á heimaleikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA og Tindastóll hafa víxlað á heimaleikjum þar sem völlurinn á Sauðárkróki er ekki leikhæfur sem stendur.

Liðin áttu að mætast á Sauðárkróksvelli næstkomandi laugardag, það átti að vera heimaleikur Tindastóls.

Sá leikur mun þess í stað fara fram á föstudagskvöldið í Boganum og verður heimaleikur Þórs/KA.

Seinni leikur liðanna í Bestu deild kvenna verður svo á Sauðárkróksvelli. Sá leikur á að fara fram þann 30. júlí og hefjast klukkan 18:00.

Liðin mættust á dögunum og vann Þór/KA sigur og komst áfram í 8-liða úrslit bikarsins. Sá leikur var heimaleikur Tindastóls en fór fram á Dalvíkurvelli. Síðasti heimaleikur Tindastóls þar á undan fór fram á Greifavellinum á Akureyri.
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 14 13 0 1 34 - 4 +30 39
2.    Valur 14 13 0 1 40 - 13 +27 39
3.    Þór/KA 14 9 0 5 31 - 17 +14 27
4.    Víkingur R. 14 5 5 4 18 - 21 -3 20
5.    FH 14 6 1 7 19 - 25 -6 19
6.    Stjarnan 14 5 1 8 17 - 29 -12 16
7.    Þróttur R. 14 4 2 8 13 - 19 -6 14
8.    Tindastóll 14 3 2 9 14 - 30 -16 11
9.    Fylkir 14 2 3 9 14 - 26 -12 9
10.    Keflavík 14 3 0 11 9 - 25 -16 9
Athugasemdir
banner
banner
banner