Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 14:32
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kveður Merino sem er á leið til Arsenal - „Vil að menn kveðji svona"
Mynd: EPA
Imanol Aguacil, stjóri Real Sociedad, kvaddi í dag Mikel Merino en spænsi miðjumaðurinn er á förum frá Sociedad til Arsenal.

Arsenal greiðir 28 milljónir punda fyrir Merino og getur verðmiðinn hækkað um fjórar milljónir punda til viðbótar. Hann hefur verið hjá Sociedad síðan 2018.

„Ég sagði 'takk kærlega fyrir' við Mikel. Sem stjóri Real, þá vil ég að menn kveðji svona. Hann kom hingað 22 ára án þess að hafa slegið í gegn. Hann hefur átt sex ótrúleg ár, átt frábæra leiki, unnið bikar og farið fimm sinnum í Evrópukeppni. Hann skilur eftir sig u.þ.b. 30 milljónir, kveður sem leikmaður Real og fer til Arsenal," sagði stjórinn.

Merino er spænskur landsliðsmaður sem er uppalinn hjá Osasuna og lék með Dortmund og Newcastle áður en hann fór aftur til Spánar árið 2018.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner