Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   fös 30. ágúst 2024 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
AC Milan reynir að fá tvo leikmenn
Tammy Abraham er í læknisskoðun.
Tammy Abraham er í læknisskoðun.
Mynd: EPA
Ítalska stórliðið AC Milan er orðað við tvo leikmenn á þessum gluggadegi.

Tammy Abraham, sem hefur leikið með Roma síðustu ár, er í læknisskoðun hjá Milan en hann er að ganga til liðs við félagið á láni. Alexis Saelemaekers fer í hina áttina á láni.

Í vikunni var fullyrt að Abraham væri nálægt því að ganga í raðir West Ham en nú bendir allt til þess að hann haldi sig innan Ítalíu.

Þá er Milan að reyna að fá franska miðjumanninn Adrien Rabiot en hann er án félags.

Rabiot lék síðast með Juventus en samningur hans þar rann út eftir síðasta tímabil.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner