Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   fös 30. ágúst 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Beckham vill fá meiri ást frá stuðningsmönnum Man Utd
Mynd: Getty Images

David Beckham, fyrrum leikmaður Manchester United, segist vilja fá meiri ást frá stuðningsmönnum félagsins.


Beckham var gestur í þættinum Hot Ones á Youtube rásinni First We Feast þar sem gestirnir borða sterka kjúklingavængi og svara spurningum um allt milli himins og jarðar.

Hann var spurður að því hvað væri uppáhalds lag sem hann heyrði stuðningsmenn syngja.

„Ég heyri söngva um Eric Cantona, Bobby Robson og Roy Keane frá stuðningsmönnum Manchester United. Ég heyri sjaldan 'Það er aðeins einn David Beckham'. Ef stuðnignsmenn Man Utd eru að horfa þá myndi ég gjarnan vilja heyra það aftur," sagði Beckham.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner