Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Chelsea gefst ekki upp á Osimhen
Mynd: Getty Images

Chelsea hafði samband við Napoli í gærkvöldi en enska félagið vill fá Victor Osimhen.


Það er hart barist um Osimhen en viðræður sádí arabíska félagsins Al Ahli við Napoli eru á lokastigi.

Chelsea vill fá Osimhen á láni út tímabilið með kaupskyldu næsta sumar.

Osimhen er sagður vilja frekar fara til Chelsea en Napoli er tilbúið til að selja hann fyrir tæplega 70 milljónir evra, en framherjinn myndi þéna um 30 milljónir í árslaun á fjögurra ára samningi hjá Al-Ahli.


Athugasemdir
banner
banner
banner