Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 09:16
Elvar Geir Magnússon
Napoli vonast enn til að landa Gilmour
Mynd: EPA
Napoli vonast enn til þess að geta fengið skoska miðjumanninn Billy Gilmour frá Brighton í dag.

Ökklameiðsli Matt O’Riley, sem Brighton keypti á dögunum, virtust setja möguleg félagaskipti Gilmour í óvissu.

Sky Sports segir þó að viðræður séu enn í gangi milli Napoli og Brighton.

Eitt af því sem eigi eftir að semja um eru árangurstengdar greiðslur ofan á kaupverðið sjálft sem myndi vera í kringum 12 milljónir punda.

Gluggadagurinn er í dag. Glugganum verður lokað í enska, spænska og ítalska boltanum klukkan 22:00 í kvöld. Þýska glugganum verður lokað klukkan 18 og franska 21.
Athugasemdir
banner
banner
banner