Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Skotmark Liverpool á leið til Al-Nassr
Mynd: EPA

Mohamed Simakan, miðvörður RB Leipzig, er að öllum líkindum á leið til sádí-arabíska félagsins Al-Nassr.


Sky í Þýskalandi greindi frá því fyrr í þessum mánuði að Liverpool hefði áhuga á þessum 24 ára gamla miðverði sem getur einnig leyst stöðu hægri bakvarðar.

Nú er hins vegar talað um að hann sé á leið til Al-Nassr en viðræður milli félagana eru langt á veg komnar. Talið er að hann muni kosta á bilinu 40-50 milljónir evra.

Það er komið að lokadegi félagaskiptagluggans en Liverpool seldi Sepp van den Berg á dögunum til Brentford. Joe Gomez hefur verið orðaður frá félaginu og þá þarf Liverpool að bregðast við því.


Athugasemdir
banner
banner