Man City gerir tilboð í Olmo - Barcelona reynir líka að fá spænska landsliðsmanninn - Wan-Bissaka vill ekki fara til West Ham
   lau 10. febrúar 2024 10:15
Elvar Geir Magnússon
Sveinn Gíslason býður sig fram í stjórn KSÍ
Sveinn Gíslason (til vinstri).
Sveinn Gíslason (til vinstri).
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frá skrifstofu KSÍ.
Frá skrifstofu KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Gíslason fyrrum formaður Breiðabliks hefur tilkynnt um framboð sitt til stjórnar KSÍ en kosið verður á ársþingi sambandsins þann 24. febrúar.

Í tilkynningu þar sem tilkynnt er um framboð Sveins segist hann vilja láta gott af sér leiða á því sviði sem hann er sterkastur, sviði fjármála og stjórnunar.

Tilkynningin í heild:

Öflugur fótbolti og traustur rekstur
Sveinn Gíslason, fyrrverandi formaður aðalstjórnar Breiðabliks, býður sig fram í stjórn KSÍ sem kosin verður í lok mánaðarins á ársþingi sambandsins.

„Ég þekki íþróttahreyfinguna og innviði hennar mjög vel og þær áskoranir sem stjórnarmenn íþróttafélaga standa frammi fyrir í sínum daglegu störfum. Í starfi mínu sem formaður Breiðabliks tók ég virkan þátt í að bæta aðstöðu og umgjörð fyrir kattspyrnu innan félagsins og þekki vel þær áskoranir sem þar þarf að mæta.
Ég hef brennandi áhuga á fótbolta. Þeim áhuga deila strákarnir mínir fjórir með mér sem ég fylgdi í gegnum yngri flokka starf og núna erum við saman í stúkunni til að hvetja og styðja meðal annars elsta barnabarnið sem ver markið hjá meistaraflokki kvenna hjá Val. Í gegnum það skemmtilega áhorf og starfið í Kópavogi þekki ég vel verkefnin í kvennaboltanum og hef mikinn áhuga á vexti hans og viðgangi.

Ég er þó ekki að bjóða mig fram í stjórn KSÍ vegna þekkingar minnar á fótbolta heldur langar mig að láta gott af mér leiða á því sviði sem ég er sterkastur þ.e. sviði fjármála og stjórnunar. Um leið og við byggjum upp fótboltann í landinu þá þurfum við að tryggja góðan og nútímalegan rekstur. Hjá Breiðabliki beitti ég mér fyrir vönduðum stjórnarháttum og góðu utan um haldi um fjármál og áætlanagerð.

KSÍ er flaggskipið í Íslensku íþróttalífi ásamt því að gegna veigamiklu samfélagslegu hlutverki almennt, það er því afar mikilvægt að sambandið sé góð fyrirmynd í öllu er snýr að góðum stjórnarháttum og fjármálmálum. Mig langar að leggja mitt lóð á vogarskálar og vinna þannig að framgangi fótboltans í landinu.“


Sveinn sat í aðalstjórn Breiðabliks frá árinu 1999 til 2022 eða í 23 ár, fyrst sem gjaldkeri aðalstjórnar en síðustu ár sem formaður. Sveinn er rekstrarhagfræðingur að mennt frá Copenhagen Business School (CBS) og hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans síðan 2001. Sveinn hefur gengt ýmsum stjórnunarstörfum hjá bankanum í gegnum tíðina en er í dag forstöðumaður á sviði bankans sem heitir Markaðir og annast m.a. eignastýringu og verðbréfamiðlun. Sveinn býr því yfir víðtækri stjórnunarreynslu sem og reynslu af fjármálamarkaði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner