Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool að velja á milli tveggja félaga fyrir Ben Doak
Ben Doak.
Ben Doak.
Mynd: Getty Images
Félög í Championship-deildinni eru á eftir Ben Doak, ungum kantmanni Liverpool.

Hull og Middlesbrough eru að reyna að fá hann á láni.

Samkvæmt Sky Sports þá er Liverpool að íhuga það hvor möguleikinn sé betri fyrir þróun hans sem leikmanns.

Doak er 18 ára gamall en hann gekk í raðir Liverpool frá Celtic árið 2022. Hann þykir mjög efnilegur en hann hefur spilað tíu keppnisleiki með aðalliði Liverpool.

Doak hefur spilað sjö leiki fyrir U21 landslið Skotlands en hann var valinn í A-landsliðið í fyrsta sinn fyrr á þessu ári. Hann var í úrtakshópi Skota fyrir EM en þurfti að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner