Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Verður Dele Alli liðsfélagi Hákonar?
Dele Alli.
Dele Alli.
Mynd: Everton
Lille í Frakkland hefur sýnt miðjumanninum Dele Alli áhuga að sögn Sky Sports.

Hákon Arnar Haraldsson er á meðal leikmanna Lille sem tekur þátt í Meistaradeildinni í vetur.

Dele Alli er samningslaus en hann hefur verið að æfa með Everton í sumar. Hann var á mála hjá enska félaginu á síðasta tímabili en spilaði ekkert vegna meiðsla.

Everton hefur rætt við hann um nýjan samning en það hefur ekki verið gengið frá neinu.

Lille hefur áhuga á þessum hæfileikaríka miðjumanni en hann þarf ekki að ganga frá samningi í dag þó glugginn sé að loka þar sem hann er án félags.

Dele var á sínum tíma einn besti fótboltamaður Englands en hann hefur átt erfitt utan vallar síðustu ár og hefur það truflað hann innan vallar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner