Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 13:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Carney Chukwuemeka orðaður við Man Utd
Mynd: EPA
Manchester United er þessa stundina orðað við Carney Chukwuemeka hjá Chelsea. Það er Sky Sports sem vekur athygli á því.

Fram kemur að ef af einhverjum félagaskiptum yrði þá yrðu þau ótengd mögulegum skiptum Jadon Sancho frá United til Chelsea.

Chukwuemeka er tvítugur miðjumaður sem Chelsea keypti af Aston Villa árið 2022.

Hann er fæddur í Austurríki en hefur spilað með yngri landsliðum Englands. Hann hefur ekki komið við sögu á þessu tímabili.

Chukwuemeka er þriðji leikmaður Chelsea sem orðaður er við United síðustu daga. Raheem Sterling og Ben Chilwell höfðu áður verið orðaðir við United.
Athugasemdir
banner
banner
banner