Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 13:57
Elvar Geir Magnússon
Ipswich komið aftur í viðræður um Broja
Mynd: EPA
Ipswich er komið aftur í viðræður við Chelsea um albanska sóknarmanninn Armando Broja.

Broja var á leið til Ipswich í síðustu viku en þá komu ljós meiðsli í læknisskoðun.

Meiðslin eru þó ekki talin alvarleg og Broja ætti að snúa bráðlega til baka á völlinn.

„Það hafa verið viðræður við Armando og það er ekkert leyndarmál. Sjáum hvort við finnum lausnir áður en glugganum lokar," segir Kieran McKenna, stjóri Ipswich.

Gluggadagurinn er í dag. Glugganum verður lokað í enska, spænska og ítalska boltanum klukkan 22:00 í kvöld. Þýska glugganum verður lokað klukkan 18 og franska 21.
Athugasemdir
banner
banner
banner