Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
   fös 30. ágúst 2024 15:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Orri Steinn fær sömu verðlaunin annan mánuðinn í röð
Orri Steinn Óskarsson.
Orri Steinn Óskarsson.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Orri Steinn Óskarsson er einn eftirsóttasti sóknarmaður heims um þessar mundir.

Real Sociedad á Spáni er að reyna að kaupa hann áður en glugginn lokar en það bendir ekki mikið til þess að akkúrat núna að hann fari þangað á þessum tímapunkti.

Orri, sem varð tvítugur í gær, hefur farið frábærlega stað á nýju tímabili með FC Kaupmannahöfn en í dag var hann verðlaunaður.

Þetta eru verðlaun sem Orri er farinn að kannast býsna vel við en hann var valinn besti ungi leikmaður mánaðarins í dönsku úrvalsdeildinni.

Þetta er annar mánuðurinn í röð sem Orri fær þessi verðlaun.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner