Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
„Hætt að borða nammi í Tenerife ferðinni þegar hún var tíu ára"
GunnInga í bláa hafinu: Styðjum liðið okkar í blíðu og stríðu
„Eru geggjaðir karakterar og munu bíta fast frá sér“
Tólfan spáir sigri - „Hef bara séð eina Noregstreyju“
Fékk leyfi til að fljúga beint frá Albaníu til Sviss
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
   mán 10. september 2018 16:39
Elvar Geir Magnússon
Gefur út eigulega bók um þátttöku Íslands á HM
Ævintýri í Austurvegi
Skapti með bókina.
Skapti með bókina.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Blaðamaðurinn Skapti Hallgrímsson hefur 40 ára reynslu af íþróttaskrifum en þegar hann hóf ferilinn bjóst hann ekki við því að einn daginn myndi hann skrifa bók um þátttöku íslenska fótboltalandsliðsins á HM.

Skapti var í Rússlandi í sumar og fylgdist með strákunum okkar. Hann hélt úti dagbók um veru landsliðsins í Rússlandi en bókin ber heitið „Ævintýri í Austurvegi" og er komin í verslanir.

Það frækna afrek Íslands að komast á stærsta svið fótboltans hefur vakið heimsathygli og fannst Skapta að það þyrfti að vera til bók um þátttökuna á mótinu.

Skapti ræddi um landsliðið og bókina í viðtali við Fótbolta.net en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner