Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 13:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Calvert-Lewin plan B hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur rætt við Everton um möguleg kaup á Dominic Calvert-Lewin á þessum gluggadegi. Það er talkSPORT sem greinir frá.

Chelsea er orðað við þrjá framherja í dag en af þeim er Victor Osimhen efstur á blaði. Ivan Toney er talinn mjög ólíklegur kostur og því er Calvert-Lewin talinn plan B ef samkomulag næst ekki við Osimhen.

Chelsea er tilbúið að greiða uppsett verð fyrir Osimhen en félagið er hins vegar ekki tilbúið að greiða Osimhen þau laun sem hann vill fá. Chelsea er með sinn launastrúktúr og það sem Osimhen vill fá passar alls ekki þar inn í og því þyrfti hann að lækka sínar kröfur umtalsvert.

Osimhen er ásamt Toney orðaður við Al Ahli í Sádi-Arabíu, en þeir fara ekki báðir þangað miðað við fréttir fyrr í dag.

Chelsea er tilbúið að láta Everton fá David Datro Fofana í skiptum ásamt því að greiða ákveðna upphæð. Everton vill halda Calvert-Lewin en það er umtalað að Everton veitir ekki af peningum í kassann.

Calvert-Lewin á innan við ár eftir af samningi sínum.
Athugasemdir
banner
banner
banner