Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 20:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mynd: Orri og umboðsmaður hans í einkaflugvél
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Orri Steinn Óskarsson er við það að ganga til liðs við Real Sociedad á Spáni en hann er á leið til Spánar að klára félagaskiptin.


Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano birti mynd af Orra Steini og Magnúsi Agnari Magnússyni, umboðsmanni íslenska landsliðsmannsins, í flugvél á leið til Spánar.

Orri Steinn er nýorðinn tvítugur en hann hefur farið hamförum hjá FC Kaupmannahöfn á tímabilinu. Sociedad borgar danska félaginu 20 milljónir evra en aðeins Gylfi Þór Sigurðsson var dýrari af Íslendingum þegar hann gekk til liðs við Everton fyrir tæplega 50 milljónir evra.

Orri Steinn hefur skorað sjö mörk í 12 leikjum í deild og bikar fyrir FCK á tímabilinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner