Eze, Rabiot, Dyche, Howe og miðjumannsleit Liverpool í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 30. ágúst 2024 14:43
Elvar Geir Magnússon
Palace gæti reynt að fá Chalobah
Mynd: Getty Images
Crystal Palace veltir því fyrir sér að gera lánstilboð í Trevoh Chalobah, varnarmann Chelsea.

Chalobah er ekki í plönum Enzo Maresca stjóra Chelsea.

Palace mun halda Marc Guehi en þrátt fyrir það er félagið að skoða þörf á því að fá inn nýjan miðvörð, vegna meiðsla Chadi Riad sem er að glíma við hnémeiðsli.

Lyall Thomas fréttamaður Sky Sports segir að Palace hafi ekki gert tilboð í Chalobah en það sé í umræðunni. Félagið hafi verið að horfa til hans á meðan óvissa var í gangi varðandi Guehi.

Gluggadagurinn er í dag. Glugganum verður lokað í enska, spænska og ítalska boltanum klukkan 22:00 í kvöld. Þýska glugganum verður lokað klukkan 18 og franska 21.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner