Kylian Mbappe er svo gott sem orðinn leikmaður Real Madrid en frá þessu greinir Fabrizio Romano.
Búið er að skrifa undir alla pappíra en það eina sem á eftir að gerast er að Real Madrid kynni hann opinberlega sem nýjan leikmann liðsins.
Real Madrid vann Meistaradeildina í gær eftir sigur á Dortmund í úrslitaleik á Wembley en Romano segir að félagið muni kynna Mbappe til leiks á næstu dögum.
Mbappe greindi sjálfur frá því undir lok síðasta tímabils að hann myndi yfirgefa PSG eftir tímabilið og það hefur lengi verið rætt um að hann myndi ganga til liðs við Real Madrid.
?????? Kylian Mbappé to Real Madrid, HERE WE GO! Every document has been signed, sealed and completed.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 2, 2024
Real Madrid, set to announce Mbappé as new signing next week after winning the Champions League.
Mbappé made his decision in February; he can now be considered new Real player. pic.twitter.com/MMqEp1C0pK