Valgeir Valgeirsson var á skotskónum þegar Örebro gerði jafntefli í næst efstu deild í Svíþjóð í dag.
Liðið fékk Oddevold í heimsókn en gestirnir voru með 1-0 forystu í hálfleik. Valgeir jafnaði metin eftir tæplega klukkutíma leik.
Hann ætlaði líklega að senda boltann fyrir markið en boltinn fór yfir markvörðinn og í netið.
Oddevold náði aftur forystunni en Örebro tókst að jafna aftur á lokamínútu venjulegs leiktíma. Valgeir lék allan leikinn.
Örebro er í 11. sæti deildarinnar með 12 stig eftir 11 umferðir.
Örebro SK:s Valgeir Valgeirsson chippar in ett inlägg som seglar hela vägen in i mål, 1-1 på Behrn Arena!
— discovery+ sport ???????? (@dplus_sportSE) June 2, 2024
???? Se all kommande sport på vår nya streaming-hemmaplan Max, där du ser allt från Superettan. pic.twitter.com/Cuemkq2BQw
Athugasemdir