Það var stuð og stemning er Real Madrid fagnaði Meistaradeildartitlinum í fimmtánda sinn í sögu félagsins í gær.
Carlo Ancelotti braut internetið þegar hann stillti sér upp á mynd með leikmönnum Real Madrid eftir að liðið vann La Liga fyrir tveimur árum, en þar sést hann með vindil í munninum með dökk sólgleraugu og trefil.
Þetta hefur orðið að hálfgerðri hefð hjá liðinu síðan, en þeir endurtóku leikinn eftir að liðið vann deildina í síðasta mánuði og aftur í fögnuði liðsins í gær.
Carlo Ancelotti recreated his iconic cigar picture with Camavinga, Militão, Vinicius, Alaba, and Rodrygo ???? pic.twitter.com/MoJuT28taZ
— ESPN FC (@ESPNFC) June 2, 2024
Faðir Dani Carvajal var þá viðstaddur þegar liðstrútan fékk lögreglufylgd er hún keyrði um götur Madrídar-borgar.
Hann starfar sem lögreglumaður og fékk það hlutverk að vera fremstur á hesti sínum í fylgd lögreglunnar. Sögulegt augnablik fyrir hann og ekki síður son hans, sem var besti leikmaður Madrídinga í úrslitaleiknum.
Dani og faðir hans tóku síðan mynd saman með Meistaradeildarbikarinn eins og sjá má í færslunni hér fyrir neðan.
Dani Carvajal's father escorted the Real Madrid bus through the streets of Madrid for the UCL celebration. He then got to take a picture with his son and the trophy ????
— ESPN FC (@ESPNFC) June 2, 2024
What dreams are made of ???? pic.twitter.com/47F9qVHeAo
El padre de Dani Carvajal está escoltando al equipo de su hijo.
— Guillermo Rai (@GuillermoRai_) June 2, 2024
Otra historia de película. @TheAthleticFC pic.twitter.com/KwLRflXzJa
Athugasemdir