Heimild: RÚV
Fyrrum landsliðs- og atvinnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson var í Héraðsdómi Reykjaness sýknaður fyrir kynferðisbrot gegn barnungri stúlku. Kolbeinn var ekki viðstaddur dómsuppkvaðninguna.
Það er RÚV sem greinir frá.
Það er RÚV sem greinir frá.
Kolbeinn var ákærður fyrir að hafa brotið kynferðislega á barnungri stúlku í sumarhúsi í júní fyrir tveimur árum. Foreldri stúlkunnar krafðist þriggja milljóna króna í miskabætur en kröfunni var vísað frá.
Sagði saksóknari í ákærunni hann hafa nýtt yfirburði sína yfir henni. Kolbeinn neitaði sök.
Dómurinn var skipaður tveimur embættisdómurum og sálfræðingi.
Kolbeinn lék á sínum ferli 64 leiki fyrir landsliðið og skoraði 26 mörk. Hans síðasti leikur á ferlinum var fyrir Gautaborg í Svíþjóð haustið 2021.
Hægt er að lesa dóminn með því að smella hérna.
Athugasemdir