Villarreal 0 - 0 Atletico Madrid
Atletico Madrid heimsótti Villarreal í eina leik kvöldsins í spænska boltanum.
Úr varð ansi fjörugur leikur þó bæði lið hafi stundað það að skilja marga menn eftir í vörn þegar þau geystust fram.
í heildina áttu liðin 41 marktilraun í leiknum en aðeins 6 rötuðu á rammann, þrjú skot frá hvoru liði.
Atletico er í sjötta sæti eftir jafnteflið, með 26 stig eftir 16 umferðir. Villarreal er í neðri hlutanum, með 19 stig.
Athugasemdir