Sandra María: Gáfum líkama og sál en það skilaði engu
Hlín kom frábær inn - Svekkt með hlutverkið sitt
Sveindís: Hann kemur samt þegar ekkert er undir
Glódís svekkt: Leyfðum henni að gera nákvæmlega það sem hún vill
Guðrún: Fæ gæsahúð í hvert skipti
Ingibjörg lýsir sorgarferlinu - „Þetta er ömurleg tilfinning"
Dagný: Að öllum líkindum mitt síðasta Evrópumót
Tómas Bent: Hefði átt að troða inn þriðja markinu
Túfa ánægður eftir sannfærandi Evrópusigur: Það er gaman að vera Valsari
Eru 22 saman í Sviss - „Áfram Vestri og áfram Guðrún"
„Hætt að borða nammi í Tenerife ferðinni þegar hún var tíu ára"
GunnInga í bláa hafinu: Styðjum liðið okkar í blíðu og stríðu
„Eru geggjaðir karakterar og munu bíta fast frá sér“
Tólfan spáir sigri - „Hef bara séð eina Noregstreyju“
Fékk leyfi til að fljúga beint frá Albaníu til Sviss
Einar Guðna þurfti ekki að hugsa málið - „Algjört draumastarf"
Halli: Er ekkert í þessu til að hefna fyrir eitt né neitt
Halli Hróðmars: Orðið ansi þungt leik eftir leik
Úlfur Ágúst: Ég reyndi og sem betur fer fór hann inn
Jökull: Við vorum líklegri og sköpuðum betri færi
   lau 15. september 2018 22:39
Elvar Geir Magnússon
Halli Björns: Brynjar ætlaði að eyðileggja leikinn
Haraldur kyssir bikarinn í mjólkurbaði í kvöld.
Haraldur kyssir bikarinn í mjólkurbaði í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Tilfinningin er geggjuð. Sjáðu hvað þetta þýðir fyrir fólkið," sagði Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, eftir sigur á Breiðabliki í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 4 -  1 Breiðablik

Silfurskeiðin fékk bikarinn í hendurnar þegar Haraldur var í viðtalinu. „Þessi bikar er ónýtur held ég, þeir eru að fara að eyðileggja hann. Þetta er bara geggjað," sagði Haraldur léttur.

Haraldur varði vítaspyrnu frá Arnóri Gauta Ragnarssyni í 4-1 sigri Stjörnunnar í vítaspyrnukeppni.

„Ég náði hendi á boltann og sá síðan að boltinn skoppaði ofan á þaknetinu. Það var rosalega góð tilfinning."

Undir lok venjulegs leiktíma bjargaði Haraldur meistaralega þegar Brynjar Gauti Guðjónsson var næstum búinn að skora sjálfsmark.

„Ég veit ekki hvað Brynjar var að gera. Hann ætlaði að eyðileggja leikinn fyrir okkur. Sem betur fer náði ég honum."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner