Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   þri 16. júlí 2019 22:25
Alexandra Bía Sumarliðadóttir
Þórunn: Gaman og stemning að spila á svona blautum velli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórunn Helga Jónsdóttir var að vonum sátt með 4-2 sigur á HK/Víking á Meistaravöllum í kvöld. Með sigrinum lyfti KR sér úr 8. sætinu, upp í það fimmta.

„Mikil gleði. Ótrúlega mikilvægt fyrir okkur að fá þessi stig, það er stutt á milli þarna rétt fyrir ofan botninn þannig að þetta er bara ótrúlega mikilvægt. Þetta er loksins að detta með okkur." sagði Þórunn eftir leik.

Völlurinn var mjög blautur í kvöld og lítið gekk í fyrrihálfleik að ná upp spili, en KR komu mjög sterkar inn í síðari hálfleikinn.

"Það er bara gaman og stemning að spila á svona blautum velli, það bara háir báðum liðum." sagði Þórunn á léttu nótunum.

„Fínt spil inn á milli og frábært að fá fjögur mörk, að koma til baka líka er mjög gott, þannig ég er bara virkilega sátt."


Lestu um leikinn: KR 4 -  2 HK/Víkingur

Næsti deildarleikur KR er eftir viku gegn toppliði Vals en fyrst eiga þær leik í undanúrslitum Mjólkurbikarsins gegn Þór/KA. Það er þétt dagskrá framundan.

„Það er mjög stutt á milli leikja núna, sem er bara mjög skemmtilegt. Tökum núna þrjá heimaleiki í röð. Það er bara mjög skemmtilegt prógram." sagði Þórunn að lokum.
Athugasemdir
banner
banner