Sky Sports hefur gefið leikmönnum einkunnir eftir 0-2 sigur Liverpool á útivelli gegn Ipswich Town í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Sky útnefnir Mohamed Salah sem besta leikmann vallarins en gefur honum aðeins 7 í einkunn, eins og flestum öðrum leikmönnum Liverpool.
Jarell Quansah var lélegasti leikmaður vallarins með 5 í einkunn, en Arne Slot tók hann útaf í hálfleik í dag fyrir Ibrahima Konaté.
Liam Delap og Jacob Greaves voru þá bestu leikmenn heimamanna með 7 í einkunn, á meðan aðrir leikmenn liðsins fengu 6 fyrir sinn þátt.
Ipswich: Walton (6), Tuanzebe (6), Woolfenden (6), Greaves (7) Davis (6), Morsy (6), Luongo (6), Burns (6), Chaplin (6), Hutchinson (6), Delap (7)
Varamenn: Harness (6), Taylor (6), Al-Hamadi (6), Johnson (6), Szmodics (6)
Liverpool: Alisson (7), Alexander-Arnold (7), Quansah (5), Van Dijk (7), Robertson (6), Gravenberch (6), Szoboszlai (7), Mac Allister (7), Diaz (7), Jota (7), Salah (7),
Varamenn: Konate (7), Bradley (6), Gakpo (6)
Athugasemdir