Greenwood eftirsóttur - Isak til PSG? - Chelsea vill gera skiptidíl við Inter
   sun 22. september 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Villarreal reynir að stöðva sigurgöngu Barca
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Getafe mætir Leganés í fyrsta leik dagsins í efstu deild spænska boltans áður en Athletic Bilbao fær Celta Vigo í heimsókn í áhugaverðum slag.

Athletic er með 10 stig eftir 6 umferðir, einu stigi meira en Celta sem á þó leik til góða.

Stórleikur dagsins hefst svo klukkan 16:30 þegar Villarreal spilar við Barcelona í toppbaráttunni, en hér mætast tvö af fjórum liðum deildarinnar sem eru enn ósigruð.

Barca er með fullt hús stiga eftir 5 umferðir á meðan Villarreal er með 11 stig eftir tvö jafntefli.

Rayo Vallecano fær svo Atlético Madrid í heimsókn í lokaleik dagsins, en lærisveinar Diego Simeone eru einnig taplausir það sem af er tímabils og deila þriðja sætinu með Villarreal.

Leikir dagsins:
12:00 Getafe - Leganes
14:15 Athletic Bilbao - Celta
16:30 Villarreal - Barcelona
19:00 Rayo Vallecano - Atletico Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 5 5 0 0 17 4 +13 15
2 Real Madrid 6 4 2 0 13 3 +10 14
3 Atletico Madrid 5 3 2 0 9 2 +7 11
4 Villarreal 5 3 2 0 11 8 +3 11
5 Alaves 6 3 1 2 9 7 +2 10
6 Athletic 6 3 1 2 8 6 +2 10
7 Osasuna 6 3 1 2 8 11 -3 10
8 Celta 5 3 0 2 13 10 +3 9
9 Betis 5 2 2 1 5 4 +1 8
10 Mallorca 6 2 2 2 4 4 0 8
11 Vallecano 5 2 1 2 7 6 +1 7
12 Girona 6 2 1 3 8 10 -2 7
13 Espanyol 6 2 1 3 6 9 -3 7
14 Sevilla 6 1 2 3 5 8 -3 5
15 Real Sociedad 7 1 2 4 3 7 -4 5
16 Leganes 6 1 2 3 3 7 -4 5
17 Valladolid 6 1 2 3 2 13 -11 5
18 Valencia 6 1 1 4 5 10 -5 4
19 Getafe 5 0 3 2 2 4 -2 3
20 Las Palmas 6 0 2 4 7 12 -5 2
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner