Greenwood eftirsóttur - Isak til PSG? - Chelsea vill gera skiptidíl við Inter
   sun 22. september 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þyskaland í dag - Stórleikir í Leverkusen og Stuttgart
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Fjórðu umferð þýska deildartímabilsins lýkur í dag þar sem þrír spennandi slagir eru á dagskrá.

Ríkjandi meistarar Bayer Leverkusen hefja daginn á heimavelli gegn Wolfsburg sem átti gott tímabil í fyrra en hefur farið illa af stað í ár.

Leverkusen er með sex stig eftir tap gegn RB Leipzig í síðustu umferð, en Wolfsburg er aðeins með þrjú stig eftir að hafa tapað báðum heimaleikjum sínum til þessa.

Stuttgart, sem endaði í þriðja sæti í fyrra, tekur svo á móti Borussia Dortmund í stórleik. Dortmund er komið með sjö stig og þarf sigur til að minnka forystu FC Bayern á toppi deildarinnar.

Nýliðar St. Pauli eiga að lokum heimaleik gegn RB Leipzig en St. Pauli vermir botnsæti deildarinnar og er án stiga. Liðið fór upp úr næstefstu deild á síðustu leiktíð undir stjórn Fabian Hürzeler, sem er aðalþjálfari Brighton í dag.

Leikir dagsins:
13:30 Leverkusen - Wolfsburg
15:30 Stuttgart - Dortmund
17:30 St. Pauli - RB Leipzig
Athugasemdir
banner
banner
banner