Fundación Real Madrid í samstarfi við knattspyrnudeild HK kynnir með stolti námskeið fyrir metnaðarfulla iðkendur í Kórnum, Kópavogi 12. - 16. ágúst 2024.
Námskeiðið er fyrir iðkendur fæddir 2010-2013 (4. og 5. flokkur).
Einungis eru 100 sæti í boði! Opið er fyrir biðlista.
Unnið er eftir gildum Real Madrid þar sem áhersla er á samvinnu, virðingu og leiðtogahæfni undir leiðsögn öflugra þjálfara.
Æfingar fyrir eldri hópinn (f. 2010-2011) fara fram fyrir hádegi kl. 09:00-11:30 og yngri hópinn (f. 2012-2013) eftir hádegi kl. 13:00-15:30.
Fundación Real Madrid er sá armur Real Madrid sem stendur fyrir námskeiðum á vegum félagsins. Á námskeiðum leiðbeina þjálfarar frá Real Madrid ungum leikmönnum eftir forskrift sigursælasta félags Evrópu.
Margir af bestu leikmönnum sögunar hafa spilað í hvítu treyjunni, þar á meðal Casillas, Modric, Ronaldo, Benzema og Zidane. Real Madrid teflir einnig fram öflugu kvennaliði með landsliðskonum á borð við Linda Caicedo og Kenti Robles.
Innifalið í námskeiðinu:
- Adidas treyja
- Adidas stuttbuxur
- Adidas bolti
- Viðurkenningarskjal
Námskeiðsgjald fyrir fimm æfingar með þjálfurum frá Fundación Real Madrid. Verð: 45.000 kr.
Skráningar fara fram á heimasíðu HK með því að smella hér.
Nánari upplýsingar veitir [email protected].