Douglas Luiz fer til Juve - Man Utd í viðræðum um Leny Yoro - Lazio býður í Greenwood - Wan-Bissaka til Tyrklands - West Ham vill Calvert-Lewin -...
   mán 03. júní 2024 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KA sendir frá sér yfirlýsingu - Ætla að áfrýja málinu til Landsréttar
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals og fyrrum þjálfari KA.
Arnar Grétarsson, þjálfari Vals og fyrrum þjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA var að senda frá sér yfirlýsingu þar sem félagið tilkynnir að það ætli sér að áfrýja dómi Héraðsdómi Norðurlands til Landsréttar.

Arnar, fyrrum þjálfari KA og núverandi þjálfari Vals, stefndi KA fyrr á þessu ári en málið sneri að kröfum sem þjálfarinn taldi sig eiga á hendur KA fyrir ógreiddan bónus eftir að hafa hjálpað liðinu að komast í Evrópukeppni.

Í dómnum sem féll í síðasta mánuði var KA gert að greiða Arnari tæpar 11 milljónir króna en félagið ætlar sér að fara með málið lengra.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlýsingu félagsins.

Yfirlýsing KA
Þann 14. maí sl. kvað Héraðsdómur Norðurlands eystra upp dóm í máli Arnars Grétarssonar gegn Knattspyrnufélagi Akureyrar (KA). Málið var höfðað til innheimtu bónusgreiðslna sem Arnar taldi sig eiga rétt á úr hendi KA. Um var að ræða bónusgreiðslur sem eiga rót sína að rekja til árangurs KA í Evrópukeppni sumarið 2023 en á þeim tíma var Arnar þjálfari Vals. Ágreiningur málsins lýtur einkum að túlkun á einni grein samnings aðila hvar fjallað er um bónusgreiðslur vegna þátttöku KA í Evrópukeppni og greinir aðila á um túlkun greinarinnar.

Héraðsdómur féllst á kröfur Arnars og hefur KA nú ákveðið að áfrýja málinu til Landsréttar. KA fellir sig ekki við þá túlkun sem dómurinn er byggður á og telur mikilvægt að fá úr því skorið, ekki bara fyrir KA heldur önnur íþróttafélög og atvinnulífið almennt, hvort starfsfólk geti átt kröfu til greiðslna eftir að ráðningarsamband viðkomandi starfsmanns og atvinnurekanda hefur runnið sitt skeið á enda, einkum og sér í lagi þegar kröfurnar tengjast árangri sem viðkomandi starfsmaður átti ekki þátt í. Bent er á að Arnar Grétarsson ákvað einhliða að semja við annað lið áður en samningur hans við KA rann út en á þeim tímapunkti var KA ekki búið að tryggja sæti sitt í Evrópukeppni. Að mati KA geta starfsmenn ekki átt heimtingu á greiðslum eftir að ráðningarsambandi lýkur og þá vegna atvika sem til koma eftir það tímamark og verður sem fyrr segir látið á þetta reyna fyrir Landsrétti.
Athugasemdir
banner
banner