Fiorentina tapaði fyrir Olympiakos í úrslitaleik Sambandsdeildarinnar í gær en úrslitin þýða að Torino mun ekki spila í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Olympiakos vann 1-0 sigur þar sem sigurmarkið kom seint í framlengingu.
Olympiakos vann 1-0 sigur þar sem sigurmarkið kom seint í framlengingu.
Hefði Fiorentina unnið leikinn hefði liðið farið í Evrópudeildina og Sambandsdeildarsætið farið til Torino sem hafnaði í níunda sæti ítölsku A-deildarinnar.
En þar sem Fiorentina tapaði úrslitaleiknum, annað árið í röð. fer Fiorentina í Sambandsdeildina þriðja árið í röð.
Það verða átta ítölsk lið í Evrópukeppnum á næsta tímabili. Inter, AC Milan, Juventus, Atalanta og Bologna fara í Meistaradeildina en Roma og Lazio fara í Evrópudeildina.
Fiorentina fer í Sambandsdeildina og vonast til þess að komast í úrslitaleik hennar þriðja árið í röð.
Athugasemdir