Sara Björk Gunnarsdóttir var í byrjunarliði Al-Qadsiah þegar liðið rúllaði yfir Al-Amal í sádi arabísku deildinni í dag.
Sara Björk lagði upp þriðja mark liðsins á Ajara Nchout sem skoraði fjögur mörk í 9-0 sigri. Liðið er í 4. sæti með 22 stig eftir 13 umferðir. Sara Björk hefur skorað sex mörk og lagt upp þrjú í 12 leikjum.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á skotskónum þegar Leverkusen mætti Frankfurt í toppslag í þýsku deildinni.
Frankfurt komst yfir með marki úr vítaspyrnu en Karólína jafnaði metin. Frankfurt var með 2-1 forystu í hálfleik en Leverkusen tókst að jafna aftur eftir fimm mínútna leik í seinni hálfleik.
Frankfurt skoraði hins vegar sigurmark aðeins mínútu síðar. Karólína var tekin af velli eftir klukkutíma leik. Frankfurt er á toppnum með 32 stig, þremur stigum á undan Íslendingaliðunum Bayern og Leverkusen en Bayern á leik til góða á sunnudaginn gegn Íslendingaliði Leipzig.
?? Karólina Lea Vilhjálmsdóttir ????
— DAZN Women's Football (@DAZNWFootball) January 31, 2025
Watch live for free on DAZN ?? https://t.co/dIfKpURfZv#DieLiga pic.twitter.com/Ipg5TUARc5
Athugasemdir