Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 10:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tottenham nær samkomulagi við Bayern um kaup á Tel
Mynd: EPA
Tottenham og Bayern Munchen hafa náð munnlegu samkomulagi um kaup Tottenham á franska framherjanum Mathys Tel.

Kaupverðið er sagt vera 50 milljónir punda. Ef salan gengur í gegn verður um metsölu hjá Bayern að ræða.

Þrátt fyrir að munnlegt samkomulag sé í höfn milli félaganna þá eru skiptin talsvert frá því að vera frágengin því nú tekur leikmaðurinn ákvörðun hvort hann vilji fara til Tottenham.

Sagt er að Tel sé ekki búinn að ákveða hvort hann vilji fara alfarið frá Bayern eða hvort hann vilji eingöngu fara á láni og vonast svo eftir því að brjóta sér leið í gegn hjá Bayern í framtíðinni.

Chelsea, Aston Villa og Al-Ahli í Sádi-Arabíu hafa einnig áhuga á hinum 19 ára gamla Tel.
Athugasemdir
banner