Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Bröndby vill metfé fyrir Kvistgaarden
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Celtic er í leit að nýjum framherja til að fylla í skarðið fyrir Kyogo Furuhashi sem var seldur til Rennes á dögunum.

Skoska stórveldið hefur mikinn áhuga á danska framherjanum Mathias Kvistgaarden en kaupverðið gæti reynst of hátt.

Bröndby vill fá metfé fyrir Kvistgaarden, eða um 15 milljónir evra.

Kvistgaarden er 22 ára gamall landsliðsmaður U21 liðs Dana. Hann hefur skorað 38 mörk í 109 leikjum fyrir Bröndby og hefur verið í miklu stuði á yfirstandandi tímabili.

Hann er kominn með 10 mörk og 4 stoðsendingar í 15 deildarleikjum í efstu deild danska boltans.

Kvistgaarden skoraði þá í báðum leikjum U21 landsliðs Dana gegn Íslandi í undankeppni fyrir EM síðasta haust.

Í gær var greint frá því að Sarpsborg hafnaði tæpu 5 milljóna punda tilboði frá Celtic í kantmanninn Sondre Örjasæter.
Athugasemdir
banner
banner
banner