Tel vill helst fara til Man Utd - Annað tilboð í Mitoma - Watkins opinn fyrir Arsenal
   fös 31. janúar 2025 20:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Newcastle og Aston Villa sektuð - Tindall sleppur við refsingu
Jason Tindall og Eddie Howe, stjóri Newcastle
Jason Tindall og Eddie Howe, stjóri Newcastle
Mynd: EPA
Aston Villa og Newcastle hafa fengið sekt eftir að slagsmál brutust út í leik liðanna á St James' Park á annan í jólum.

Atvikið átti sér stað í hálfleik þegar Newcastle vann Aston Vilal 3-0 en það endaði með því að Jason Tindall, aðstoðarþjálfari Newcastle og Victor Manas, sem er í þjálfarateymi Aston Villa, voru reknir upp í stúku.

Enska sabandið kærði bæði félög fyrir að hafa ekki hemil á leikmönnum og þjálfurum liðanna. Aston Villa fékk 30 þúsund punda sekt en Newcastle aðeins 20 þúsund punda sekt.

Manas og Tindall voru báðir kærðir fyrir hegðun sína. Manas fékk 4 þúsund punda sekt og tveggja leikja bann en Tindall hafnaði ásökunum og það var ekki hægt að sanna neitt á hann því slapp hann við refsingu.
Athugasemdir
banner
banner