Það var hart barist um Stefan Bajcetic, ungan miðjumann Liverpool, í janúarglugganum og vann spænska félagið Las Palmas að lokum baráttuna. Fabrizio Romano greinir frá þessu.
Bajcetic mun því halda til Las Palmas og búa í sólinni næstu mánuði en það fylgir ekkert ákvæði með samningnum. Leikmaðurinn snýr því aftur til Liverpool í sumar.
Bajcetic er 20 ára gamall og lék á láni hjá austurríska stórveldinu RB Salzburg á fyrri hluta tímabils en fékk ekki mikinn spiltíma. Liverpool ákvað því að endurkalla hann úr láninu og voru mörg félög áhugasöm um að fá hann til sín í janúar.
Las Palmas hafði að lokum betur og fær Bajcetic til að hjálpa sér í fallbaráttunni.
Las Palmas er þremur stigum frá fallsvæðinu í La Liga sem stendur, með 23 stig eftir 21 umferð.
Athugasemdir