Hlaðvarp Tólfunnar, stuðningsmannahóps íslenska landsliðsins, hefur hafið göngu sína að nýju.
Kominn er nýr þáttur þar sem nýr formaður Tólfunnar, Hilmar Jökull, ræðir málin við Svenna fyrrverandi formann og Ósa Kóng.
Kominn er nýr þáttur þar sem nýr formaður Tólfunnar, Hilmar Jökull, ræðir málin við Svenna fyrrverandi formann og Ósa Kóng.
Tólfan ætlar að vera með gleði á Ölveri í kringum umspilsleikina gegn Kosóvó í mars, þó báðir leikir verði spilaðir erlendis.
Í þættinum er farið yfir ráðningu á nýjum landsliðsþjálfara en Hilmar Jökull, sem er mikill Bliki, fagnar ráðningu á Arnari Gunnlaugssyni.
„Ég horfði á blaðamannafundinn og maðurinn sem ég hef sungið um og gert grín af öll þessi ár þegar hann þjálfaði Víkinga seldi mér það á skotstundu, ég held með þessum gæja. Ég trúi á Jesú Krist og Arnar Gunnlaugs," segir Hilmar í þættinum.
Umsjón: Ósi kóngur
Tæknimaður: Dóri Gameday
Gestir: Svenni og Hilmar Jökull
Athugasemdir