Aston Villa íhugar það að reyna fá Marcus Rashford á láni frá Manchester United. Það er The Athletic sem greinir frá.
Rashford hefur verið úti í kuldanum hjá Ruben Amorim, stjóra United, síðustu vikur og hefur verið orðaður í burtu frá félaginu.
Hann hefur verið orðaður við Barcelona, Marseille, Dortmund, Tottenham, Napoli, Juventus og AC Milan að undanförnu.

Rashford vill fara til Barcelona en gæti mögulega skoðað aðra kosti þar sem hann er alls ekki inn í myndinni hjá Amorim.
Aston Villa er í leit að sóknarmanni þar sem Jhon Duran er að fara til Al-Nassr í dag og fyrr í glugganum fór Emi Buendía á láni til Leverkusen.
Athugasemdir