Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fim 30. janúar 2025 11:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Draumurinn rættist á Spáni - „Augnablikið sem ég hef lifað lífi mínu fyrir"
Mynd: EPA
Hinn 17 ára gamli Ethan Nwaneri byrjaði sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni þegar Arsenal heimsótti Girona í gærkvöldi. Nwaneri átti frábæran leik, skoraði sigurmarkið og var maður leiksins þegar Arsenal vann endurkomusigur.

„Þetta er einn af toppunum klárlega því þetta er Meistaradeildin, sem ég hef elskað og horft á síðan ég var ungur. Að koma hingað og vera maður leiksins í fyrsta byrjunarliðsleiknum er sérstök tilfinning. Ég er glaður."

„Að heyra Meistaradeildarlagið var óraunverulegt, það er augnablikið sem ég hef lifað lífi mínu fyrir. Þetta var sérstakt fyrir mig. Þetta er klikkað, lífið líður hratt. Ég er ánægður að vera hér. Þetta er það sem ég vildi alltaf verða, svo ég er þakklátur fyrir að vera hér."

Nwaneri er virkilega spennandi leikmaður sem hefur komið vel inn í lið Arsenal á tímabilinu og hefur verðskuldað fengið fleiri og fleiri sénsa.

Arsenal endaði deildarkeppnina í Meistaradeildinni í 3. sæti og þarf því ekki að fara í umspil um sæti í 16-liða úrslitum.
Athugasemdir
banner
banner